Aldursvélmennið klúðrar aldrinum á 11 þingmönnum — en nær einum hárréttum

Microsoft kynnt í vikunni vefsíðuna How-Old.net, sem giskar á aldur fólks.

Sjá einnig: Vefsíða giskar á aldur fólks

Auglýsing

Tilgangurinn er að sýna tæknina sem Microsoft vinnur að bak við tjöldin en vefurinn kemur til með að verða betri og betri í því að giska á aldur fólks eftir því sem fleiri nota hann. Hér má lesa um tæknina á bakvið vefinn.

Nútíminn fékk aldursvélmennið til að giska á aldur nokkurra þingmanna og niðurstaðan er nokkuð skemmtileg. Vélmennið nær nánast aldrei að giska á réttan aldur en er stundum ansi nálægt því.

 

Forsætisráðherra varð fertugur á dögunum en vélmennið trúir því ekki og klúðrar aldri hans algjörlega.

Bjarni Ben fær hins vegar silkihanskameðferð frá vélmenninu en hann er 45 ára gamall.

Screen-Shot-2015-05-01-at-17.20.47

Jóhanna María er yngsti þingmaður landsins og vélmennið trúir ekki að hún sé aðeins 23 ára gömul.

Screen-Shot-2015-05-01-at-17.35.07

Og unglambið Össur er aðeins 61 árs en fær harkalega að kenna á því frá vélmenninu.

Screen-Shot-2015-05-01-at-17.32.44

Óttarr er 46 ára þannig að þetta gisk er ekki svo slæmt.

Screen-Shot-2015-05-01-at-17.34.28

En Brynjar er hins vegar aðeins 54 ára og fær að kenna á því frá vélmenninu.

Screen-Shot-2015-05-01-at-17.36.56

Birgitta er á miklu flugi með Pírötum þessa dagana. Hún er 48 ára en fylgið virðist yngja hana.

Screen-Shot-2015-05-01-at-17.37.17

Og vélmennið er nokkuð nálægt Helga Hrafni sem er þó aðeins 33 ára.

Screen-Shot-2015-05-01-at-17.35.45

Vélmennið tekur 10 ár af Sigríði Ingibjörgu, sem er 46 ára.

Screen-Shot-2015-05-01-at-17.33.49

En er ansi nálægt Sigurði Inga. Hann er 53 ára.

Screen-Shot-2015-05-01-at-17.33.26

Eins og alltaf þegar persónukannanir eru gerðar á þingmönnum kemur Katrín Jakobsdóttir best út. Hún er 39 ára en vélmennið tekur af henni áratug!

Screen-Shot-2015-05-01-at-17.34.49

Í einu tilviki var vélmennið með hárrétt gisk. Vigdís Hauksdóttir varð fimmtug á dögunum.

Screen-Shot-2015-05-01-at-17.33.07

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing