Alfreð Finnbogason hnígur niður á sviði

Al­freð Finn­boga­son tók á dögunum við viður­kenn­ingu fyr­ir að verða marka­hæsti leikmaður hol­lensku úr­vals­deild­ar­inn­ar í fótbolta á síðasta tíma­bili. Alfreð skoraði 29 mörk fyrir Heerenveen en leikur nú með spænska liðinu Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildinni.

Alfreð var með flensu þegar hann tók við verðlaununum og á þessu myndbandi frá vef Telegraaf sést þegar hann verður hreinlega grænn í framan, hnígur niður og þarf á aðhlynningu að halda.

Hann braggaðist þó, hátíðin gat haldið áfram og hann tjáði sig um atvikið á fullkominni hollensku.

 

Auglýsing

læk

Instagram