Anníe Mist auglýsir rúm: Vaknar við sjálfvirkt nudd

Crossfit-drottningin Anníe Mist auglýsir rúmin frá bandaríska framleiðandanum Reverie. Hún birtir mynd á Instagram-síðunni sinni í dag þar sem hún liggur í rúmi frá framleiðandanum og þakkar fyrir sig en á heimasíðu fyrirtækisins eru einnig skilaboð frá henni þar sem hún segist aldrei hafa fengið jafn góðan nætursvefn og í rúmi frá Reverie.

Á Instagram segir hún:

Komin með Reverie-rúmið mitt. Hlakka til að fá góðan nætursvefn og hlakka einnig til að vakna við nudd.

Reverie sérhæfir sig í rúmum sem hjálpa íþróttamönnum að jafna sig eftir hörð átök. Hægt er að stilla rúmin með appi í farsímum og spjaldtölvum og til dæmis láta rúmið hefja nudd á ákveðnum morgnana.

Anníe Mist býr nú í New York þar sem hún er atvinnumaður í Crossfit. Hún keppir með Crossfit-liðinu New York Rhinos í hinni svokölluðu Grid-deild. Heimavöllur liðsins er hin víðfræga íþróttahöll Madison Square Garden.

Auglýsing

læk

Instagram