Arna Ýr Jónsdóttir var í kvöld valin ungfrú Ísland og verður fulltrúi Íslands í Miss World í Kína í desember. Keppnin fór fram í Silfurbergi í Hörpu í kvöld.
Sjá einnig: „Þægindaramminn“ er orð kvöldsins í Ungfrú Ísland: Twitter fylgist grannt með
Vinsælasta stúlkan var Helena Reynisdóttir, sportstúlkan var Thelma Fanney Magnúsdóttir, módelstúlkan var Íris Rósa Hauksdóttir og Malín Agla Kristjánsdóttir var hæfileikastúlkan.
Á Vísi kemur fram að stelpurnar hafi verið við undirbúning í allt sumar.
„Þær fengu förðunarþjálfun, þjálfun í sviðsframkomu og framkomu í fjölmiðlum til að mynda. Eins og tilkynnt var í upphafi sumars hefur undirbúningur keppenda verið með breyttu sniði í ár, en skipuleggjendur segja að aukin áhersla verði lögð á þætti á borð við eflingu sjálfsmyndar og framkomu í fjölmiðlum. Hjónin Hafdís Jónsdóttir og Björn Leifsson, kennd við World Class, keyptu keppnina í fyrra.“
—
Nýtt! taktu próf! Hvaða Fóstbræðrapersóna ert þú?