Árni gekk lengra og vafði pylsu í brauði inn í pítsu og borðaði, sýndi frá máltíðinni á Snapchat

Árni Torfason, Íslendingur búsettur í Svíþjóð, ákvað að ganga lengra en að borða upprúllaða pítsu. Hann útbjó pylsu með steiktum lauk og nokkrum sósum og rúllaði kebab-pítsu utan um hana.

Vísir greindi fyrst frá.

Árni deildi ferlinu að sjálfsögðu á Snapchat og hefur nú birt myndband með snöppunum á YouTube.

Hann fékk hugmyndina á Twitter

Sjá einnig: Myndband: Getur skrifstofumaður rúllað upp stórri pítsu og klárað hana alla sjálfur?

Í myndbandinu kemur aftur á móti ekki fram hvort Árni hafi lokið við máltíðina, líkt og Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri Nútímans, gerði þegar hann rúllaði upp 16” pítsu frá Dominos.

Auglýsing

læk

Instagram