Ásgeir Kolbeinsson er í forsvari fyrir nýja eigendur tónleika- og skemmtistaðarins Nasa, sem opnar aftur í haust.
Nasa við Austurvöll lokaði í júní árið 2012. Til stóð að reisa þar hótel en nýir eigendur tóku við húsnæðinu í desember og settu áformin á ís.
Í tilkynningu kemur fram að skipulagsbreytingar á húsinu verði margvíslegar og notkunarmöguleikar þess verða hámarkaðir.
Á sama tíma og mikil virðing verður sýnd þessu einstaka húsnæði sem svo sannarlega margir hafa skoðun á. Nýir eigendur eru spenntir fyrir því að kynna þessar breytingar fyrir landsmönnum en hugsanlegt er að einhverjir einstakir viðburðir verði á Nasa í maí áður en húsið lokar endanlega um mánaðarmótin maí/júní og framkvæmdir hefjast þá strax í kjölfarið.
Allar nánari upplýsingar um Nasa, breytingarnar og þá starfsemi sem verður í húsinu í framtíðinni verða kynntar á blaðamannafundi á Nasa í lok maí.