Þvílíkur maður: Átta ástæður fyrir því að við elskum öll Guðjón Val Sigurðsson

Íslenska landsliðið vann Svart­fell­inga með tólf marka mun í gær og tryggði sér þar með far­seðil­inn á Evr­ópu­meist­ara­mótið í handbolta karla í Póllandi í janú­ar á næsta ári.

Við fögnum þessu en viljum um leið heiðra einn mann. Þvílíkan mann: Guðjón Val Sigurðsson. Hann skoraði tíu mörk í leiknum og hér eru átta ástæður fyrir því að við elskum hann öll.

Auglýsing

 

1. Svona spilar hann handbolta

Guðjón Valur spilar handbolta með Barcelona og varð á dögunum Evrópumeistari með liðinu. Barcelona vann ungverska liðið Veszprem í úrslitaleiknum. Guðjón Valur skoraði sex mörk og lék allan leikinn.

2. Hann á pitsustað með vinum sínum

Guðjón Valur opnaði pitsustaðinn Íslenska flatbakan í Kópavogi í lok mánaðarins ásamt tveimur vinum sínum.

3. Hann er mikill grallari

mwefq

4. Hann er með forgangsröðunina á hreinu

Guðjón Valur missti af æfingamóti í Danmörku og Svíþjóð í janúar og sagði þá í samtali við Vísi að fjöskyldan væri mikilvægari en handboltinn:

„En sonur minn lá veikur á spítala og ég sagði að ég kæmi ekkert fyrr en að hann kæmi út. Aðstæður eru þannig – maður forgangsraðar í lífinu og börnin og fjölskyldan eru mér mikilvægari en handboltinn. En ég náði samt að æfa alla daga þó svo að ég hafi ekki verið í handbolta.“

5. Hann er í fáránlegu formi

Handboltalandsliðið sá um Nova-Snapchatið á sunnudag. Þar sást Guðjón Valur ber að ofan og þetta gerðist:

 6. Hann kann að vinna

mwgcw

Ísland vann Svartfjallaland auðveldlega á sunnudag. Í viðtali á Vísi sagðist Guðjón Valur gríðarlega ánægður með frammistöðu áhorfenda og vildi ekki segja andstæðingana lélega.

„Ég er bara rosalega ánægður hvernig við spiluðum og mér finnst alltaf leiðinlegt að heyra að aðrir séu lélegir.“

7. Hann keyrir mótorhjól

mwg9m

8. Hann talar ekki í kringum hlutina

Fyrir heimsmeistaramótið í handbolta í Katar var mikið talað um aðbúnað verkafólks í landinu. Guðjón Valur sagði það hreint út fyrir mótið að hann væri ekki spenntur fyrir að heimsækja landið:

Ég hef tvisvar spilað mót þarna. Þeir ná í einhverja iðnaðarmenn og útlendinga sem vinna hjá þeim til að fylla stúkurnar. Mér finnst líklegt að það verði þannig líka núna. Eftir að hafa spilað tvö mót þarna þá get ég með góðri samvisku sagt að það var ekkert merkilegra en að fara bara á æfingu.

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing