Ísland vann glæsilegan 2-1 sigur á Tékklandi í undankeppni Evrópumótsins í fótbolta í kvöld.
Aron Einar og Kolbeinn skoruðu mörkin og komu okkur skrefi nær lokakeppni Evrópumótsins. Leikurinn var stórskemmtilegur og Nútíminn tók saman nokkur augnablik sem skilgreindu hann.
1. Búningar Tékklands vöktu talsverða athygli og þá sérstaklega sú staðreynd að leikmenn liðsins frelsuðu geirvörtuna #FreeTheNipple
Þessir hvítu, þröngu búningar eru eitthvað sem fleiri lið mættu vinna með ??
— Brynja Dögg (@brynjad93) June 12, 2015
Þessir þröngu búningar eru líka ein helvítis veisla
— Hrafnhildur Agnarsdóttir (@Hreffie) June 12, 2015
Viðbjóðslega þröngir og ljótir búningar hjá Tékkum #isltek #fotbolti
— Ómar Ingi (@OmarIngiGud) June 12, 2015
2. Við sáum þetta augnablik einhvern veginn svona.

3. King Lars lét fara vel um sig í flugvélasætinu.

4. Aron Einar, fyrirliði íslenska liðsins, fórnaði sér í alla bolta og uppskar takkafar á öxlina frá Tómasi Rosicky.

5. Mark Tékklands var stórglæsilegt. Íslenska liðið tvíefldist í kjölfarið.

6. Það var viðeigandi að fyrirliðinn skuli stanga fyrsta mark Íslands inn eftir stórglæsilega sendingu frá Ara Frey Skúlasyni.

7. Jón Daði Böðvarsson átti flotta innkomu. 1, 2 Selfoss!
8. Og mark Kolbeins Sigþórssonar var punkturinn yfir i-ið. Ískaldur á móti einum besta markverði Evrópu tryggði hann Íslendingum sigur.
Þetta er svo fallegt.
Á skalanum 1 til Kolbeinn Sigþórsson, hversu falleg er þessi mynd? pic.twitter.com/PeCmG8enqJ
— Atli Fannar (@atlifannar) June 12, 2015

