Auglýsa Gullnámuna á Facebook og reyna að svíkja peninga út úr Íslendingum

Auglýsing fyrir app sem kallar sig „Reykjavik Casino“ er nú farin að birtast íslenskum notendum á Facebook, ásamt ljósmynd af spilastað Gullnámunnar í miðborg Reykjavíkur. Framsetningin gefur til kynna íslenska tengingu – en slík tenging er ekki fyrir hendi. Þá ber að nefna að Facebook-síða spilavítisins var stofnuð, þegar þetta er skrifað, fyrir 14 klukkutímum síðan.

Samkvæmt upplýsingum Nútímans hefur Happdrætti Háskóla Íslands, sem rekur Gullnámuna, Háspennu og happdrættisvélar víða um land, ekki sett á laggirnar neitt app. Gullnáman og Háspennan eru ekki til á netinu og ekki er hægt að spila þær í gegnum smáforrit eða á veraldarvefnum.

Svik frá A til Ö

Auglýsing

Allt bendir til þess að um sé að ræða síðu sem sett hefur verið í loftið á síðustu dögum og beinist að íslenskum notendum. Nafnið „Reykjavik“, norræn ímynd og ljósmynd úr miðborginni eru notuð til að skapa trúverðugleika og fá fólk til að leggja inn peninga.

Skjáskot af Google Play-síðu appsins „Reykjavik Casino“, þar sem lofað er 1.500 evra bónus og 250 fríum snúningum, þrátt fyrir að engin tenging sé við íslenska rekstraraðila.

Engar upplýsingar liggja fyrir um íslenskt rekstrarfélag eða leyfi hér á landi.

„Reviews“ hlaðast inn á methraða

Samhliða auglýsingunum eru „reviews“ að birtast með óvenjulegum hraða. Þar má meðal annars finna umsögn sem sögð er skrifuð af „Michael Thompson“ fyrir átta klukkutímum síðan:

„Finally, Reykjavik Casino has released a proper mobile app. Clean interface, stable performance and clear navigation. Being able to play anytime really saves time. The 1500 euro + 250 free spins welcome bonus was credited without any issues.“

Umsagnir sem birtast innan nokkurra klukkustunda og leggja sérstaka áherslu á stóran innborgunarbónus vekja spurningar um áreiðanleika þeirra.

Auglýsing sem birtist íslenskum notendum á Facebook þar sem ljósmynd af Háspennu er notuð til að kynna „Reykjavik Casino“ á netinu og lofa 1.500 evra bónus og 250 fríum snúningum.

Fullyrt að engum gögnum sé safnað

Í lýsingu appsins er jafnframt fullyrt að engum gögnum sé safnað, þrátt fyrir að um sé að ræða fjármálaviðskipti með inn- og útborganir. Slíkt stenst illa.

Niðurstaðan er einföld: Happdrætti Háskóla Íslands hefur ekki tekið upp neitt app og ekki er hægt að spila Gullnámuna eða Háspennu á netinu. Allt annað er blekking og fjársvik.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing