Auknar líkur á eldgosi við Sundhnúksgígaröðina

Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðvörunarstig á Reykjanesi og segir að svæðið sé nú komið inn í tímabil þar sem auknar líkur eru á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi. Tímabilið getur staðið yfir í allt að þrjá mánuði.

Kvikan að safnast fyrir undir Svartsengi

Mælingar sýna að frá síðasta gosi í júlí hafa safnast um 10–11 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi. Þegar slíku magni hefur verið náð aukast líkurnar verulega á kvikuhlaupi, og því gæti næsta gos hafist hvenær sem er.

Auglýsing

Samkvæmt líkanreikningum gæti neðri mörkum kvikusöfnunar verið náð 27. september, en efri mörkum í kringum 18. desember.

Líklegasti upptakastaðurinn áfram sá sami

Ef til goss kemur er líklegast að það hefjist á milli Sundhnúks og Stóra-Skógfells, líkt og í fyrri atburðum. Reikna má með stuttum fyrirvara, frá 20 mínútum upp í nokkrar klukkustundir. Veðurstofan fylgist grannt með smáskjálftum, aflögunarmælingum og þrýstingi í borholum sem geta gefið vísbendingar um að gos sé yfirvofandi.

Viðvörunarstig hækkað – nýtt hættumatskort

Viðvörunarstigið hefur verið hækkað úr VALS=1 í VALS=2. Nýtt hættumatskort gildir til 14. október, nema breytingar á virkni kalli á annað.
VALS (Volcanic Alert Level System) hefur fjögur stig og er notað til að miðla upplýsingum til almennings og viðbragðsaðila um stöðu eldstöðva á Íslandi.

Óvissan áfram mikil

Þrátt fyrir að líkurnar séu auknar er óvissan enn mikil. Reynsla fyrri gosa sýnir að kvikumagn sem þarf til að hrinda gosi af stað getur verið breytilegt, og því ekki hægt að segja til um nákvæma tímasetningu næsta atburðar.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing