Framleiðslufyrirtæki leikstjórans Ridley Scott, Scott Free, og framleiðslufyrirtæki Baltasars Kormáks, RVK Studios, ætla að gera saman sjónvarpsþáttaröð eftir íslenska tölvuleiknum EVE Online. Þetta kemur fram á vef tímaritsins Variety.
Forvarsmenn framleiðslufyrirtækjanna eru nú í viðræðum við hugsanlega fjárfesta um framleiðslu á svokölluðum pilot-þætti, eða prufuþætti.
RÚV greinir frá því að Baltasar hafi keypt kvikmyndaréttinn að EVE Online fyrir tveimur árum og að þáttunum yrði dreift um allan heim. Þar kemur einnig fram að áskrifendur að EVE Online séu fleiri en 400 þúsund.
Ridley Scott gerði bæði Alien og Blade Runner á sínum tíma. Hann gerði einnig kvikmyndina Prometheus á Íslandi.
Baltasar Kormákur er með mörg járn í eldinum. Kvikmynd hans Everest er opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum sem hefst í dag. Stórmyndin Birdman opnaði hátíðina í fyrra og tryllirinn Gravity árið þar áður.
Ingvar E. Sigurðsson fer með hlutverk í henni ásamt Jake Gyllenhaal, Keiru Knightley, Robin Wright, Josh Brolin, Emily Watson og Sam Worthington.
Myndin er byggð á bókinni Into Thin Air eftir rithöfundinn og fjallagarpinn Jon Krakauer. Segir hún frá hörmungaratburðum sem áttu sér stað á Everestfjalli árið 1996 þar sem átta fjallgöngumenn fórust.