Eins og fjölmiðlar greindu frá í gærkvöldi var ráðist á tónlistarmanninn og Jackass-meðliminn Bam Margera í baksviðsaðstöðu tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice.
Margera ku hafa verið í annarlegu ástandi að áreita starfsfólk hátíðarinnar þegar ráðist var á hann.
Fyrir nokkrum árum kom hann ásamt félögum sínum í Jackass-hópnum og tók þátt í eftirminnilegum þætti af Djúpu lauginni, sem var á dagskrá Skjás eins.
Þar var hann spurður hvert helsta takmark sitt í lífinu væri
Og svo virðist sem hann hafi verið að ná einhverju skrýtnu takmarki í gærkvöldi
Því hann sagðist af einhverjum ástæðum vilja vera illa farinn

Og að það væri eina leiðin sem honum finnst hann hafa náð árangri

Árásin átti sér stað skömmu eftir klukkan 23 í gærkvöldi. Heimildir Nútímans herma að Margera hafi verið í annarlegu ástandi að áreita starfsfólk hátíðarinnar þegar sauð upp úr. Fjöldi lögreglumanna og gæslufólks stöðvaði slagsmálin og í kjölfarið var aðstöðunni lokað.
Þetta staðfestir Ósk Gunnarsdóttir, talsmaður hátíðarinnar, í samtali við Vísi.
Hún segir að eftir að honum var meinaður aðgangur að herbergi baksviðs hafi hann tekið að áreita starfsstúlkur og að mennirnir sem réðust á Bam hafi verið að koma þeim til hjálpar.
Vel sá á Margera eftir árásina og var hann með blóðnasir. Ekki þótti þó ástæða til að kalla til sjúkrabíl.
Margera kom fram ásamt hljómsveit á hátíðinni fyrr í kvöld. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt í hópnum Jackass, sem var með vinsælan þátt á MTV ásamt því að framleiða kvikmyndir.
Hann hefur verið reglulegur gestur hér á landi síðustu misseri, gekk í hjónaband hér á landi ásamt því að eyðileggja bílaleigubíl, svo eitthvað sé nefnt.
Þáttinn má sjá í þremur hlutum hér. Hann er hræðilegur.
