Bandaríkin hafa framkvæmt umfangsmikla hernaðaraðgerð í Venesúela þar sem forseti landsins, Nicolás Maduro, og eiginkona hans voru handtekin og flutt úr landinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Donald J. Trump, sem birt var fyrir skömmu á samfélagsmiðli hans, Truth Social.
Trump segir að aðgerðin hafi verið framkvæmd í samvinnu við bandarísk lögregluyfirvöld. Frekari upplýsingar eiga að liggja fyrir síðar í dag og hefur verið boðað til blaðamannafundar klukkan 11 að staðartíma í Mar-a-Lago.
Sprengingar vöktu íbúa Caracas
Íbúar höfuðborgarinnar Caracas vöknuðu við sprengingar skömmu fyrir klukkan tvö í nótt að staðartíma. Flugvélar sáust fljúga yfir borginni og reykur steig upp frá tveimur hernaðarlegum skotmörkum í nágrenni hennar.
Um er að ræða flugherstöðina Tiego Fierta og herstöðina La Carlota, samkvæmt fréttum sem bárust í morgun. Myndefni frá svæðinu sýnir sprengingar og eldsvoða í kjölfar árásanna.
Maduro sakaði Bandaríkin um hernaðarárás
Í yfirlýsingu sem rakin er til Nicolás Maduro voru Bandaríkin sögð bera ábyrgð á árásunum. Þar voru þær sagðar „grafalvarleg hernaðaraðgerð“ gegn Venesúela.
Engar opinberar upplýsingar hafa enn verið birtar um mannfall eða umfang tjóns, hvorki af hálfu venesúelskra né bandarískra yfirvalda.
Trump staðfestir að hafa fyrirskipað árásirnar
Donald Trump hefur staðfest að hann hafi sjálfur fyrirskipað loftárásirnar. Samkvæmt honum voru þær hluti af aðgerð sem lauk með handtöku Nicolás Maduro og eiginkonu hans.
Trump segir að aðgerðin hafi verið framkvæmd í samvinnu við bandarísk lögregluyfirvöld, en nánari upplýsingar um þátttöku þeirra liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Óljóst hvert Maduro var fluttur
Trump greinir frá því að Maduro og eiginkona hans hafi verið flutt úr Venesúela eftir handtökuna. Ekki hefur verið upplýst hvert þau voru flutt né á hvaða lagagrundvelli aðgerðin byggir en bandaríska dómsmálaráðuneytið ákærði Nicolás Maduro árið 2020 við alríkisdómstól í New York, ásamt 14 núverandi og fyrrverandi embættismönnum í Venesúela, fyrir ýmsar sakir, þar á meðal fíkni-hryðjuverk (e. narco-terrorism), fíkniefnasmygl, samsæri um að flytja kókaín til Bandaríkjanna og peningaþvætti. Þessar ákærur tengdu Maduro við umfangsmikla fíkniefnaflutninga til Bandaríkjanna.