Bauluðu á Bandaríkin við opnunarhátíð Ólympíuleikanna: Mariah Carey þóttist syngja

Opnunarhátíð Vetrarólympíuleikanna í Mílanó tók óvænta pólitíska stefnu þegar bandaríska liðið gekk inn á San Siro-leikvanginn. Áhorfendur tóku innkomunni með háværu bauli og flautum, viðbrögð sem vöktu strax athygli bæði á vellinum og meðal sjónvarpsáhorfenda.

Baulið varð enn háværara þegar varaforseti Bandaríkjanna, JD Vance, birtist á risaskjám leikvangsins. Þrátt fyrir stemninguna virtust bæði íþróttamennirnir og varaforsetinn halda ró sinni og veifa áhorfendum.

Viðbrögð áhorfenda sögð tengjast pólitík, ekki keppendum

Auglýsing

Viðbrögðin voru víða túlkuð sem pólitísk mótmæli fremur en gagnrýni á bandarískt íþróttafólk. Í aðdraganda leikanna höfðu farið fram mótmæli í Mílanó vegna þátttöku ICE í tengslum við bandarísku sendinefndina, sem gagnrýnendur telja táknræna fyrir stefnu stjórnvalda í Washington.

Yfirvöld hvöttu til stillingar fyrir opnunarhátíðina

Mótmælendur lýstu yfir andstöðu við bandaríska innflytjendastefnu og valdbeitingu stjórnvalda og sögðu óásættanlegt að slíkt væri sýnilegt í tengslum við Ólympíuleikana.

Forsvarsmenn Ólympíuhreyfingarinnar höfðu fyrir opnunarhátíðina hvatt áhorfendur til að sýna stillingu og virðingu. Sú hvatning virtist þó ekki ná til allra þegar bandaríska liðið steig inn á völlinn og var mikið baulað við innkomu þess.

Mariah Carey gagnrýnd fyrir flutning sinn

Ekki var aðeins rætt um baul í stúkunni. Mariah Carey flutti Volare en flutningurinn var vægast sagt ekki upp á marga fiska.

Það þótti kristaltært að Carey væri ekki að syngja lagið í beinni. Varahreyfingar hennar voru á köflum ekki í samræmi við tónlistina og var frekar vandræðalegur á köflum líkt og sést á meðfylgjandi myndskeiði:

Opnun sem vakti athygli

Þrátt fyrir glæsilega umgjörð og mikla alþjóðlega athygli mun opnunarhátíð Vetrarólympíuleikanna líklega verða minnst fyrir hávært baul viðstaddra og tónlistaratriði sem var hálfgert klúður.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing