BDSM á Íslandi meinaður aðgangur að Gleðigöngunni og verður ekki heldur með í ár

Samtökin BDSM á Íslandi verða ekki með í Gleðigöngunni í miðborg Reykjavíkur í ár. BDSM verður ennþá fyrir miklum fordómum í hinseginsamfélaginu segir formaður samtakanna. Þetta kemur fram á vefnum Gay Iceland.

Magnús Hákonarson, formaður BDSM á Íslandi, segir í frétt á Gay Iceland að BDSM sem sé enn þá umdeilt og að stjórnendur Gleðigöngunnar séu hræddir við að hneyksla fólk sem kemur að fylgjast með.

Auglýsing

Hann segir að samtökin hafi sótt um að fá að taka þátt í fyrra en verið hafnað.

„Það voru nokkrir sem tóku mjög nærri sér að vera hafnað í fyrra,“ segir hann á Gay Iceland. Spurður hvort honum finnist gangan of tepruleg segist hann ekki vera að segja það.

En ég veit að mörgum í hinseginsamfélaginu finnst það. Við í BDSM samtökunum höfum ekki áhuga á að sjokkera fólk. Skammstöfunin BDSM er samt nóg til að fá fólk til að hvika, þannig að við erum ekki að trana okkur fram.

Spurður á Gay Iceland hvernig BDSM og að vera hinsegin tengist segir Magnús að BDSM sé hluti af kynferðislegum minnihluta.

„Þess vegna viljum við vera sýnilegri; til að vinna gegn fordómum. Steríótýpan um að BDSM tengist bara svörtu leðri og svipum er úreld. Við viljum koma á framfæri að BDSM snýst um samþykki, samskipti og traust. Það snýst ekki um að neyða fólk til að taka þátt.

En ég verð líka að viðurkenna að svart leður og svipur eru mjög töff og fólk er alveg til í þá ímynd. Það er bara ekki eingöngu það sem BDSM snýst um.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing