Biðjast afsökunar á „blackface” gervi í sumarbúðum

Mynd sem birtist í gær á Facebook síðu Ölvers, sumarbúða KFUM og K, olli mikilli reiði en á myndinni má sjá hvítan einstakling málaðan sem svartan, á ensku kallast þetta „blackface”. Ölver hefur sent frá sér tilkynningu þar sem beðist er afsökunar á vanhugsuðu gervi.

„Blackface” var notað á 19. og 20. öld þegar svörtu fólki var bannað að leika á sviði. Ótal manns vöktu athygli á myndinni á samfélagsmiðlum og gagnrýndu harðlega.

Það var Martina K. Williams, sem vakti fyrst athygli á myndinni á Facebook. Dóttir hennar átti að fara í sumarbúðirnar í sumar en hún var ekki viss hvort hún myndi senda hana aftur vegna myndarinnar sem margir hafa sagt að sé fordómafull og móðgandi.

Hún segist ánægð með að myndin hafi verið fjarlægð en að skaðinn sé þegar skeður. „Sú staðreynd að enginn hafi stoppað og hugsað er hræðileg.”

Í tilkynningu frá Ölver segir: „Við hörmum mjög atvikið sem varð vegna þekkingarskorts starfsmanna. Myndin er af karakter í leikriti. Þetta var vanhugsað gervi og aldrei meint á neikvæðan eða niðrandi hátt.”

„Í sum­ar­búðum KFUM og KFUK kenn­um við börn­um og ung­ling­um að all­ir eru jafn­ir, alltaf. Í starfi okk­ar er leit­ast við að mæta hverri mann­eskju af um­hyggju, kær­leika og virðingu. Við þökk­um all­ar ábend­ing­ar sem hafa borist og tök­um þær al­var­lega. Við biðjumst af­sök­un­ar og mun­um leit­ast við að at­vik sem þetta end­ur­taki sig ekki,“ seg­ir enn frekar í afsökunarbeiðninni.

Auglýsing

læk

Instagram