Bandaríski tæknirisinn og milljarðamæringurinn Bill Gates hafnar alfarið nýjum ásökunum sem koma fram í nýbirtum gögnum úr svokölluðum Epstein-skjölum. Þar er því meðal annars haldið fram að Gates hafi átt í kynferðislegum samskiptum við konur frá Rússlandi, smitast af kynsjúkdómi og leitað til Jeffrey Epstein eftir sýklalyfjum.
Í yfirlýsingu til DailyMail segir talsmaður Gates að fullyrðingarnar séu „algerlega fáránlegar og algjörlega rangar“.
„Sýna aðeins gremju Epsteins“
Í yfirlýsingunni segir jafnframt að skjölin sýni fyrst og fremst „gremju Epsteins yfir því að hafa ekki haft áframhaldandi samband við Gates“ og að hann hafi gengið langt í að „reyna að flækja hann og sverta mannorð hans“.
Umræddar fullyrðingar koma fram í tölvupóstum sem Epstein skrifaði sjálfum sér í júlí árið 2013. Þeir eru meðal hundruða þúsunda skjala sem bandaríska dómsmálaráðuneytið birti nýverið.
Myndir af Gates og Epstein birtar
Með skjölunum fylgja einnig nýjar, ódagsettar ljósmyndir sem sýna Gates og Epstein saman við ýmis tækifæri. Gates hefur áður sagt að hann sjái eftir tengslum sínum við Epstein, sem lést í fangelsi árið 2019, en hefur ítrekað neitað allri óviðeigandi hegðun.

Gates hefur jafnframt haldið því fram að samskipti þeirra hafi verið takmörkuð og að fundirnir hafi farið fram í stærri hópum.
Umdeildur tölvupóstur og fyrrverandi ráðgjafi
Í skjölunum er einnig að finna tölvupóst sem virðist vera drög að bréfi skrifuðu í nafni fyrrverandi ráðgjafa Gates, Boris Nikolic, í tengslum við starfslok hans hjá Gates-sjóðnum. Þar eru settar fram alvarlegar ásakanir, meðal annars um að hann hafi verið beðinn um að aðstoða við að útvega lyf.
Fullyrðingar í tölvupóstinum hafa ekki verið staðfestar og Gates hafnar þeim alfarið.
Skuggi fortíðarinnar
Tengsl Gates við Epstein hafa áður vakið athygli, meðal annars í tengslum við skilnað hans og Melindu Gates, sem hefur sagt að samskiptin við Epstein hafi verið meðal ástæðna skilnaðarins. Nánari upplýsingar um það komu þó aldrei fram opinberlega.
Bandarísk yfirvöld hafa ekki gefið í skyn að Gates hafi gerst sekur um refsiverða háttsemi í tengslum við Epstein.