Bandaríski auðjöfurinn Bill Gates kom til landsins í vikunni ásamt fjölskyldu sinni. Samkvæmt fréttum Vísis dvelur hann í sumarbústað á Suðurlandi.
Vísir greinir frá því að Gates hafi í kvöld mætt á hestasýningu sem var sett sérstaklega upp fyrir fjölskylduna á Friðheimum í Reykholti í Biskupstungum. Fjölskyldan snæddi einnig kvöldverð á staðnum.
Vísir vitnar í íbúa í Reykholti sem sagði að engum væri hleypt að Friðheimum og að lífverðir á bíl hafi lokað veginum að bænum á meðan Gates og fjölskylda voru á staðnum.
Sjá einnig: Bill Gates með þjóna og lífverði í sumarbústað á Suðurlandi
Bill Gates er 59 ára gamall og kvæntur Melindu Gates. Þau eiga þrjú börn.
Hann er um þessar mundir ríkasti maður heims en tímaritið Forbes metur auðævi hans á 79 milljarða dali. Það eru rúmlega 10 billjónir íslenskra króna. Eða svona mikið: 10.598.640.000.000.
Hann hefur heitið því að gefa stærstan hluta auðæva sinna til góðgerðarmála.