Bill Gates smakkaði ekki íslenskan mat: „Hann hlýtur að óttast að eitrað verði fyrir sér“

Björn Sigurðsson, ferðaþjónustubóndi í Úthlíð í Biskupstungum, tók á móti Bill Gates og fjölskyldu þegar þau komu til landsins á dögunum. Þetta kemur fram í Séð og heyrt.

Gates dvaldi ásamt fjölskyldu sinni í glæsibústaðnum The Trophy Lodge í Úthlíð í Biskupstungum í nokkra daga í júlí. Björn segir í Séð og Heyrt að Gates hafi ekki viljað neitt samneyti við fólk og furðar sig á því að hann hafi tekið með sér allan mat.

Hann hlýtur að óttast að eitrað verði fyrir sér eins og Rómarkeisarar til forna sem létu þjóna sína smakka fyrst til að vera öruggir með málsverðin.

Auglýsing

Björn segir í Séð og heyrt að það hljóti að vera einkennilegt að vera svona ríkur „og lifa eins og fangi í eigin umhverfi.“

„Við eigum bágt með að skilja þetta hér í sveitinni sem unum glaðir við okkar hlut að eiga til hnífs og skeiðar og óttast ekki nokkurn mann,“ segir hann í Séð og heyrt.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing