Bill Murray-dagurinn var haldinn hátíðlegur á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto á föstudag. Á meðal þess var á dagskrá voru sýningar á kvikmyndunum Stripes, Ghostbusters og Groundhog Day.
Murray mætti óvænt og heilsaði upp á fólk í röðinni á heimsfrumsýningu nýjustu myndar hans, St. Vincent. Hellidemba var í Toronto þegar Murray mætti á svæðið til að spjalla við aðdáendur sem tóku honum opnum örmum.
Bill Murray greets fans in #TIFF downpour: https://t.co/45VKn6hI3b
— Josh Lincoln Dickey (@NotoriousJLD) September 6, 2014
St. Vincent lítur vel út. Hér er stutt atriði úr myndinni en Melissa McCarthy fer einnig með stórt hlutverk: