Bílstjóri í Strætó stöðvaði vagninn til að faðma og hughreysta konu sem brotnaði niður í sæti sínu

Farþegar á leið 11 í Strætó í dag urðu vitni að því þegar bílstjórinn stöðvaði vagninn til að faðma og hughreysta konu sem hafði brotnað niður í sæti sínu.

Jóhann Óli Eiðsson blaðamaður hrósaði bílstjóranum fyrir viðbrögðin á Twitter í dag. Nútíminn hafði samband við Jóhann sem segist hafa tekið eftir að konan hafði verið í einhverjum vandræðum með Strætó-appið og meðal annars afþakkað hjálp frá konu sem bauðst til að greiða fargjaldið fyrir hana.

Eftir að vandræðin héldu áfram settist konan niður fremst í vagninn og brotnaði niður. „Á endanum fór það svo að vagnstjórinn stoppaði á næsta stoppi. Kom út úr búrinu sínu og faðmaði hana heillengi,“ segir Jóhann Óli.

Jóhann Óli veit ekki hvers vegna konan brotnaði niður og yfirgaf vagninn á augnablikinu sem þessi fallega stund átti sér stað.

Auglýsing

læk

Instagram