Ýrr Baldursdóttir, tattoo- og airbrush-meistari, hefur málað myndir Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármála- efnahagsráðherra. Myndirnar eru til sölu og rennur hluti ágóðans til Barnaspítala Hringsins.
Bjarni og Sigmundur eiga forkaupsrétt á myndunum og Ýrr segir í samtali við Vísi að hún hafi viljað veita þeim tækifæri á að gera góðverk.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá að láta gott af sér leiða. Þeir fá þá kannski plús í kladdann fá þjóðinni enda eru þeir ekki í öfundsverðri stöðu. Svo er þetta auðvitað tækifæri fyrir Sigmund Davíð og Bjarna að eignast fallegan erfðagrip.
Ýrr stefnir á að safna einni milljón króna fyrir Barnaspítalann og segir á Vísi að fleiri myndir verði málaðar.
„Kannski tökum við bara alla ríkisstjórnina? Það er full þörf á því að safna fyrir spítalann og það væri nú ekki leiðinlegt fyrir okkur og þá að geta komið með eina milljón fyrir tækjakaup og annað slíkt,“ segir hún.
Ýrr segir á Vísi að hún ætli að setja sig í samband við Sigmund Davíð og Bjarna og bjóða þeim myndirnar til sölu. Hafni þeir því fara myndirnar í almenna sölu þar sem hver sem er geti keypt þær.