Bjóða upp á vændisþjónustu í Reykjavík, kaupsýslumenn á faraldsfæti markhópurinn

Tæplega hundrað konur sem segjast vera staðsettar á höfuðborgarsvæðinu eru skráðar á alþjóðlega vefsíðu fyrir fylgdarþjónustu. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. Þegar konurnar sem bjóða upp á fylgdarþjónustu á síðunnu eru skoðaðar kemur í ljós að um vændisþjónustu er að ræða.

Vefsíðan sem um ræðir heitir City of Love og markhópurinn er fólk úr viðskiptalífinu sem ferðast mikið. Á vefsíðunni kemur fram að allt sé að gerast í miðborg Reykjavíkur þannig að auðvelt sé að fá fylgdarþjónustu. „Flestir skemmtistaðirnir eru opnir til fimm þannig að fylgdarþjónusta í Reykjavík er alltaf í boði, hvenær sem er sólarhrings.“

Svo virðist sem upplýsingar síðunnar um Reykjavík hafi ekki verið uppfærðar lengi þar sem bent er á nektarstaðinn sáluga Vegas sem var við Frakkarstíg.

City of Love hefur verið starfrækt í tíu ár en á hana eru skráðar hátt í þrjátíu þúsund konur frá 92 löndum, þar á meðal Svíþjóð, Noregi og Íslandi.

Auglýsing

læk

Instagram