Bjór á bensínstöð framandi í Reykjavík en algengur úti á landi

Olís ætl­ar um versl­un­ar­manna­helg­ina að bjóða upp á bjór á bens­ín­stöðvum sín­um á leiðinni frá Reykja­vík til Vest­manna­eyja. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag og hefur vakið mikla athygli.

Þetta er þó ekkert einsdæmi því að sögn Sigríðar Hrefnu Hrafnkelsdóttur, fram­kvæmda­stjóri smá­sölu­sviðs hjá Olís, er alltaf hægt að kaupa bjór á afgreiðslustöð Olís í Borgarnesi.

Auglýsing

Þá vita þeir sem ferðast um þjóðveginn að bjór er einnig í boði í Staðarskála.

Boðið verður upp á Tuborg flöskubjór á bens­ín­stöðvum Olís í Norðlinga­holti, Sel­fossi og Hellu ásamt því að skemmtikraft­ar koma fram.

Sig­ríður Hrefna Hrafn­kels­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri smá­sölu­sviðs hjá Olís, seg­ir í Morg­un­blaðinu í dag að þetta sé gert í sam­starfi við Þjóðhátíðar­nefnd og Ölgerðina.

Þess var óskað af hálfu Ölgerðar­inn­ar að mynd­um skoða hvort við gæt­um verið með Tu­borg bjór á boðstól­um á leiðinni til Vest­manna­eyja, vita­skuld aðeins fyr­ir farþega en ekki öku­menn.

Vínveitingaleyfið gild­ir tíma­bilið 28. júlí – 4. ág­úst frá kl. 11:30 til kl. 23:00.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing