Of Monsters and Men sendi í gær frá sér textamyndband við lagið Human. Leikarinn og trommarinn Björn Stefánsson, stundum þekktur sem Bjössi í Mínus, túlkar lagið að þessu sinni.
Sjá einnig: Ný plata Of Monsters and Men á topplistum um allan heim
Þetta er fimmta textamyndbandið af plötunni Beneath the Skin sem kom út í vikunni. Hljómsveitin var þegar búin að senda frá sér lögin Crystals, I of the Storm, Empire og Hunger.
Sala plötunnar fer vel af stað og er hún farin að skjóta upp kollinum á vinsældarlistum um allan heim.
Sjá einnig: Of Monsters and Men í beinni útsendingu í vinsælasta morgunþætti Bandaríkjanna
Platan náði efsta sæti iTunes listans í Bandaríkjunum en fór einnig inn á listana í Bretlandi, Kanada, Brasilíu, Ástralíu, Austurríki, Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu, Spáni, Danmörku, Svíþjóð og Noregi, svo einhver lönd séu nefnd.