Merkingar á speglum í líkamsræktarstöðvum World Class hafa vakið talsverða athygli. Merkingarnar hvetja fólk til að ganga frá lóðunum á sinn stað eftir notkun og sýna alvarlegan Björn Leifsson, eiganda World Class, setja fólk afarkosti: „Þú átt að ganga frá lóðunum, annars …“
Björn segir í samtali við mbl.is að hann og Hafdís Jónsdóttir, eiginkona hans, hafi reynt að hafa húmorinn í forgrunni. Hann segir að fólk skilji lóðin eftir út um allt og alltaf þar sem þau eiga ekki að vera.
„Þetta þekkist hvergi annarsstaðar í heiminum. Erlendis er þér hent út úr líkamsræktarstöðvum ef þú gengur svona um,“ segir Björn á mbl.is.
Þetta er búið að vera vandamál lengi. Þetta er að hluta til einkaþjálfurunum að kenna því þeir þjónusta kúnnana svo vel. Fólk er bara orðið vant því að þjálfararnir bæði sæki lóði fyrir það og gangi frá þeim. Því finnst bara að það eigi að vera starfsfólk á eftir þeim að ganga frá líkt og heima hjá mömmu sinni.
Björn bætir við að ef merkingarnar skila ekki árangri, þá verður byrjað að „henda liðinu út“.
„Þetta hefur skánað rosalega eftir að þessar myndir komu upp,“ segir bætir hann við á mbl.is.