Blandar saman Of Monsters and Men og Disturbed

Myndband á Youtube þar sem laginu Little Talks með Of Monsters and Men og Get Down With the Sickness hefur verið blandað saman er komið upp í tæplega 250 þúsund áhorf á nokkrum dögum.

Myndbandið var sett inn í lok ágúst af notandanum Isosine, sem sérhæfir sig í að blanda saman lögum með ólíkum listamönnum. Notandinn hefur áður blandað saman lögum Justin Bieber og Slipknot og lögum Miley Cyrus og Mumford & Sons.

Of Monsters and Men vinnur nú að nýrri plötu leyfir fólki stundum að fylgjast með á Instagram.

Auglýsing

læk

Instagram