Ljóst er að hörð barátta er framundan í kvöld þar sem allar stóru sjónvarpstöðvarnar þrjár; RÚV, Stöð 2 og Skjár einn frumsýna þætti á svipuðum tíma.
Á RÚV klukkan 19.40 snýr Gísli Marteinn aftur með nýjan þátt: Vikan með Gísla Marteini. Línuleg dagskrá Skjás eins er nú opin öllum og þar verður fyrsti þátturinn af The Voice Ísland á dagskrá klukkan 20. En það verður enginn annar en Logi Bergmann sem ríður á vaðið klukkan 19.25 þegar hann snýr aftur með spjallþáttinn sinn.
Nútíminn heyrði í Kolbrúnu Bergþórsdóttur, fjölmiðlarýni og ritstjóra DV, um það sem hún kallar blóðuga baráttu um áhorf. Kolbrún telur að The Voice eigi eftir að höfða til unga fólksins og að dyggur aðdáendahópur missi ekki af Gísla Marteini. Loks telur hún að Logi gæti orðið útundan en að það hjálpi honum þó að byrja fyrstur.
„Gísli Marteinn á svo dyggan aðdáendahóp hjá eldra fólki sem lítur á hann sem draumatengdason,“ segir Kolbrún.
Það sem mun gerast er að áhorfendur skipta á milli stöðva ef þeim líkar ekki eitthvað. Fólk er fljótt að gefast upp ef það er dauður punktur einhvers staðar. Sá sem stendur sig best nær áhorfinu.
Kolbrún er dyggur aðdáandi bandaríska Voice en óttast að íslenski þátturinn standist ekki samanburð. Hún nefnir sérstaklega dómarann Blake Shelton sem hún segir löðrandi í kynþokka og veltir fyrir sér hvort íslensku dómararnir kunni að vera eftirbátar hans.
„Það eru þónokkrar eldri konur sem líta svo á að Helgi Björns sé mjög kynþokkafullur. Ég er ekki í þeim hópi þó mér finnist hann ágætur,“ segir Kolbrún í léttum dúr. „En þetta er sexí fólk með stórbrotnar raddir í Bandaríkjunum. Getur Ísland keppt við það?“
Við spyrjum að leikslokum.
Við skulum samt hafa á hreinu að hægur leikur er fyrir fólk að sjá alla þættina og raða upp eigin dagskrá með hjálp tímaflakksins. Það verður engu að síður spennandi að sjá hvað fólk velur. En við þurfum að fá úr þessu skorið strax.