Blundur Hauks ferðast um heiminn: Good Morning America og Daily Mail birta myndirnar

Orkulúr Hauks Viðars Alfreðssonar, sem Nútíminn sagði frá í vikunni, hefur ferðast á ótrúlegum hraða um heiminn.

Myndirnar hafa verið skoðaðar hátt í milljón sinnum hér og vefur breska blaðsins Daily Mail fjallaði um þær í gær. Nú hefur vefur bandaríska morgunþáttarins Good Morning America hefur fjallað um þær.

Auglýsing

Myndband af umjölluninni má sjá hér fyrir neðan.

Nútíminn sagði í vikunni frá orkulúr Hauks Viðars, sem starfar á auglýsingastofunni Brandenburg. Vinnufélagar hans tóku mynd af honum þegar hann fékk sér stuttan hádegisblund og notuðu svo Photoshop til að setja hann í ýmsar sprenghlægilegar aðstæður.

Sjá einnig: Sprenghlægilegur orkulúr Hauks Viðars vekur heimsathygli

Brynjar Smári Alfreðsson, yngri bróðir Hauks, dreifði tengli á myndirnar á Reddit, einni mest sóttu vefsíðu heims og viðbrögðin stóðu ekki á sér.

Orkulúr Hauks náði á tímabili fyrsta sætinu á Reddit yfir vinsælasta efnið og fjörugar umræður hafa skapast um myndirnar með hátt í 500 ummælum.

Hér má sjá umfjöllun Good Morning America af vef fréttastofunnar ABC.


ABC US News | World News

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing