today-is-a-good-day

Bragi Valdimar ber ábyrgð á vinsældum sagnarinnar „að gilla“: Killikill eins og dauðarokksplata

Bragi Valdimar Skúlason, texta- og hugmyndasmiður hjá auglýsingastofunni Brandenburg, ber ábyrgðina á því að sögnin að kitla hefur þróast yfir í að gilla og orðið vinsæl.

Barnaplatan Gilligill, sem hann samdi með hljómsveitinni Memfismafíunni, átti fyrst að heita Killikill og vísa þannig í samnefnt titillag plötunnar sem fjallar um kitl. Heiti plötunnar þótti aftur á móti minna of mikið á dauðarokksplötu og titli lagsins og plötunnar þá breytt í Gilligill.

Sjá einnig: Brandenburg gerir stórskemmtilega auglýsingu með „Epal-hommum“

Þetta kemur fram í umræðum á Twitter þar sem vangaveltur fóru fram um hvernig „Liggaliggalá“ hefði breyst í „Nananabúbú“. Taldi Eiríkur Kristjánsson að Bragi Valdimar bæri ábyrgð á vinsældum sagnarinnar að gilla.

Og Bragi Valdimar viðurkennir það…

Hér má sjá brot úr laginu Gilligill

Ef þér leiðist, litli vin,
ef lyppast niður munnvikin
— ég ráð við slíkri reginhneisu kann.
Þú teygir fima fingur út
og finnur þér svo mallakút
og af öllum þínum kröftum kitlar hann.
Í algjöra klessu kitlaru hann.

Gilligill, gilligilligilligilligill…

Auglýsing

læk

Instagram