today-is-a-good-day

Brotist inn á heimili Bubba Morthens: „Vona að hann finni lífið“

Brotist var inn á heimili tónlistarmannsins Bubba Morthens í Kjós í dag. Bubbi segir frá þessu á Twitter-síðu sinni.

Samkvæmt Bubba voru hurðir eyðilagðar og mikið af skartgripum stolið. Hann segir að þjófurinn hafi náðst og að hann hafi endurheimt flest af því sem stolið var. „Vona að hann finni lífið,“ segir Bubbi á Twitter.

Uppfært: Nútíminn náði í Bubba: „Ég vona að þessi drengur nái áttum og óska honum velfarnaðar.“

Auglýsing

læk

Instagram