today-is-a-good-day

Brynjar í Of Monsters and Men lærir að fljúga

Brynjar Leifsson, gítarleikari Of Monsters and Men, lærir þessa dagana flug hjá Keili á Ásbrú. Myndband sem hljómsveitin birtir á Facebook-síðu sinni á afmælisdegi Brynjars í gær sýnir hann í flugtíma með Sverri, bróður sínum.

Brynjar er einnig í viðtali í myndbandinu og segir frá hvernig flugnámið kom til:

Við erum stödd í Keflavík og ég er á leiðinni í flugtíma með kennaranum mínum sem er líka bróðir minn. Það verður gott. Þegar ég útskrifaðist úr framhaldsskóla var ég að spara fyrir flugnáminu. Svo fengum við plötusamning og byrjuðum að ferðast. Ég hafði því engan tíma til að fljúga. Held að þetta sé níundi tíminn minn. Þetta er mjög gaman.

Auglýsing

læk

Instagram