Brynjar Níelsson hraunar yfir íslenska fjölmiðla: „Sjálfur tel ég fjölmiðla veikasta hlekkinn í íslensku samfélagi”

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vandaði íslenskum fjölmiðlum ekki kveðjunar í stöðuuppfærslu á Facebook síðu sinni í dag. Brynjar segir að fjölmiðlar séu veikasti hlekkurinn í íslensku samfélagi.

Brynjar segir að fjölmiðlar á Íslandi séu helst til pólitískir og stundi flestir jafnvel meiri pólitík en stjórnmálamenn.

„Sumir fjölmiðlar trúa að þeir séu hlutlaus upplýsingaveita og jafnvel á vegum almennings eins og þeir halda sem staðsettir er í Efstaleitinu. Hið sanna er að þeir stunda flestir meiri pólitík en stjórnmálamenn. Það segir kannski ekki mikið því flestir stjórnmálamenn eru hættir í pólitík og hafa eiginlega breyst í teknókrata. Því eru þeir að færa allt vald til umboðslausra „sérfræðinga eða fagfólks“ og fela jafnvel einhverjum hagsmunasamtökum úti í bæ að velja þetta fagfólk,” segir Brynjar.

Og það skrítna er að sumum finnst þetta lýðræðislegt.

Brynjar talar um mikilvægi fjölmiðla í frjálsum lýðræðisríkjum og segir að hlutverk þeirra sé að miðla upplýsingum og veita stjórnmálavaldinu aðhald.

„Stundum er sagt að íslenskir stjórnmálamenn séu slappir og embættismannakerfið lítið skárra. Kannski er eitthvað til í því en sjálfur tel ég fjölmiðla veikasta hlekkinn í íslensku samfélagi. Eiginlega í ruslflokki eins og þeir segja hjá matsfyrirtækjunum.”

Auglýsing

læk

Instagram