Brynjar Níelsson, fyrrverandi alþingismaður, hefur birt færslu á Facebook þar sem hann bregst við gagnrýni sem hann segir hafa sprottið í kjölfar fyrri færslu sinnar um stjórnmál og nýliðin atvik í íslensku samfélagi.
Þar gerði hann grín að ýmsum atburðum í stjórnmálum, þar á meðal heilsufari fyrrum ráðherra, auknum verkefnum einstakra ráðherra og ummælum fyrrum forseta lýðveldisins um mikilvægi andlegs jafnvægis í stjórnmálum.
Í færslunni segir Brynjar að ummæli hans hafi farið misvel í fólk og að sumir hafi talið hann gera lítið úr veikindum fyrrum menntamálaráðherra.
Brynjar tekur sérstaklega fram að slíkt hafi aldrei staðið til.
Hann segir að fyrrum ráðherrann hafi sjálfur greint honum frá slysum sem hann lenti í og þeim afleiðingum sem leiddu til þess að hann þurfti að ganga með hækjur árum saman.
Að hans sögn hafi hann einungis talið það spaugilegt og jafnvel kraftaverki líkast að hjartalokuaðgerð skyldi hafa leitt til þess að viðkomandi þyrfti ekki lengur á hækjum að halda.
Vísar í mismunandi kímnigáfu fólks
Í færslunni viðurkennir Brynjar að kímnigáfa fólks sé ólík og að ekki allir bregðist eins við háði og skopskyni.
Hann segir sig, „að lokinni ítarlegri skoðun“, hallast að því að vinstri sinnaðir fræðimenn hafi haft rétt fyrir sér í rannsóknum sínum um að vinstri menn séu almennt fyndnari en hægri menn.
Hann bætir því einnig við að sömu rannsóknir hafi sýnt að grænmetisætur séu betri í rúminu en kjötætur.
Hæðist að um bróður sínum og borgarstjórnarkosningum
Brynjar minnist einnig á bróður sinn í færslunni og segir hann alvarlega íhuga að sækjast eftir sæti á lista Miðflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum, ef marka megi nýlega færslu hans.
Ísegir bróður sinn fullkominn í hlutverkið, meðal annars vegna þekkingar hans á „vælumenningu, femínisma og undirheimum borgarinnar“, sem og annarra svipaðra eiginleika sem hann segir skipta máli fyrir frambjóðendur.
Brynjar lýkur færslunni meða segja þeim sem móðgast fyrir hönd bróður síns og vilja styðja hann geti haft samband við félag fólks í yfirvigt.