Bubbi Morthens hefur boðið rapparanum Gísla Pálma að troða upp með sér á Litla-Hrauni á aðfangadag. Tónleikarnir eru árlegir og Bubbi er vanur að taka með sér tónlistarmenn og aðra til að skemmta föngunum.
Sjá einnig: Gísli Pálmi blótaði 39 sinnum á Arnarhóli og í beinni á RÚV: „Djöfull eru þið fokking æðisleg“
Bubbi segir á Facebook-síðu sinni að hann hafi hlustað á Gísla Pálma rappa á Arnarhóli á menningarnótt.
Hann er menning — flottur fannst mér. Hef kynnst honum örlítið í sumar. Þetta er ljúflingur með attitude sem fylgir því sem hann er að gera.
Bubbi segist hafa boðið honum með sér á Hraunið. „Er búinn að bjóða honum með á Hraunið á aðfangadag. Þeir sem eru þar hafa gott af menningu,“ segir hann,
Tónleikar Gísla Pálma á menningarnótt vöktu mikla athygli. Á vef RÚV kemur fram að stofnuninni hafi borist kvartanir yfir frammistöðu Gísla, sem skóf ekki utan af hlutunum og blótaði alls 39 sinnum, samkvæmt teljara Nútímans.