Leiðrétt kl. 16.38: Nútíminn féll fyrir gríni hrekkjalómsins Bubba. Engin endurgerð á leiðinni.
—
Bubbi Morthens og þungarokkhljómsveitin Dimma ætla að endurgera plötuna Kona sem Bubbi gaf út árið 1985. Bubbi tilkynnti þetta á Snapchat í dag og birti myndbönd af sér og Dimmu í hljóðverinu Sundlauginni í Mosfellsbæ.
Sjá einnig: Bubbi er mættur á Snapchat og allir eru að missa sig yfir því
30 ár eru frá útgáfu Konu. Platan var í 17. vikur á topp tíu vinsældarlistans á sínum tíma og fór í efsta sæti. Hún inniheldur lög á borð við Talað við gluggann, Rómeó og Júlía og auðvitað titillagið Kona.
Platan var endurútgefin á 20 ára afmælinu árið 2005 og innihélt þá áður óheyrðar tónleikaupptökur með Bubba.
Bubbi hefur komið fram með Dimmu víða undanfarið og hafa þeir tekið saman lög Utangarðsmanna og Das Kapital.