Búið að selja 15 iPhone 6s á Íslandi, hefðbundin sala hefst ekki fyrr en 9. október

Fimmtán sím­ar af gerðinni iP­ho­ne 6s seld­ust upp á tveim­ur dög­um í versl­un iSím­ans á dög­un­um. Stykkið seldist á 190 þúsund krónur. Þetta kemur fram á mbl.is. Sala á símanum hefst þó ekki með hefðbundnum leiðum fyrr en 9. október en eigandi iSímans keypti símana fyrir viðskiptavini sína í Bretlandi.

Tóm­as Kristjáns­son, eig­andi iSím­ans, segir í samtali við mbl.is að viðbrögðin hafi verið frábær og áhuginn augljóslega mikill.

Við kom­um með fimmtán stykki og það seld­ist allt upp á tveim­ur dög­um. Í dag eig­um við von á stærri pönt­un. Við vor­um að leggja svona 25 þúsund krón­ur á hvern síma. Við erum að hafa fyr­ir því að sækja sím­ana til Bret­lands til að vera fyrst­ir og því fylg­ir kostnaður.

Auglýsing

Tómas segir á mbl.is að dreif­ing­araðilarn­ir á Íslandi þurfi að bíða eft­ir því að Apple út­hluti þeim sím­um.

Taktu prófið! Átt þú að fá þér nýjan iPhone?

„Við erum ekki dreif­ing­araðill­ar og því skipt­ir í raun og veru ekki hvar við fáum okk­ar síma. Við versl­um bara af síma­fyr­ir­tækj­un­um þegar þetta er komið til lands­ins en þangað til meg­um við sprella svona án þess að ein­hver sé að skipta sér af því.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing