Busta Rhymes kemur fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice. Hann kemur fram klukkan 19.30 í kvöld og Gísli Pálmi stígur á stokk á undan honum. Þetta kemur fram á vef DV.
Þetta verður semsagt mikil veisla fyrir hipp hopp-aðdáendur. Talsverðar vangaveltur hafa verið um hver leynigestur hátíðarinnar en ýmsir rapparar voru orðaðir við hlutverkið.
Busta Rhymes er 43 ára gamall og hefur meðal annars rappað með Chris Brown, A Tribe Called Quest, D. Dilla, Dr. Dre, DMX, Janet Jackson og Eminem.
Rhymes hefur áður komið til landsins en hann kom fram á tónleikum í Vodafone-höllinni árið 2011.
https://www.youtube.com/watch?v=AiVpSSkwPU4