Channing Tatum lenti í lífsháska á Vatnajökli: Hafði hægðir í storminum

Leikarinn Channing Tatum og föruneyti hans lenti í stormi á Vatnajökli í síðasta mánuði. Tatum sagði frá þessu vefnum Reddit í gær þar sem hann svaraði spurningum frá aðdáendum sínum.

Tatum og félagar dvöldu í Reykjavík ásamt því að fara í vikuferð á Vatnajökul. Hann sagði að þeir félagar hafi gert tilraun til að ganga yfir jökulinn en þegar þeir voru komnir af stað skall á stormur.

Við urðum að fá neyðaraðstoð. Ég kúkaði í storminum og hann fraus áður en hann lenti á jörðinni.

Auglýsing

Channing Tatum kom til landsins í 11. maí. Með í för er leikarinn Adam Rodriguez en hann er þekktastur fyrir frammstöðu sína í þáttunum CSI: Miami og Magic Mike-myndunum, sem eru einmitt lauslega byggðar á ævi Channing Tatum.

Sjá einnig: Hver er Channing Tatum?

Rodriguez birti mynd af sér við Leifsstöð á Instagram þar sem hann spurði aðdáendur sína hvort þeir vissu á hvaða flugvelli hann væri. Hann sagðist vera á leiðinni upp á jökul þar sem hann ætlaði að dvelja í viku í nístingskulda.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing