today-is-a-good-day

Ný ClubDub heimildarmynd væntanleg – Sjáðu stikluna

„ClubDub The Movie“ er væntanleg í Sjónvarp Símans en myndin segir sögu félaganna Arons Kristins Jónassonar og Brynjars Barkarsonar sem slógu rækilega í gegn síðastliðið sumar sem raftónlistartvíeykið ClubDub með smellum á borð við Clubbed Up, Drykk 3x og Eina Sem Ég Vil.

Eftir umfangsmikið sumar, sem einkenndist af skyndilegri frægð og tónleikum út um allt land, voru drengirnir bókaðir á nánast hvert einasta busaball landsins. Aron og Brynjar sýna á sér áður óséðar hliðar er þeir rekja báðir ævisögu sína í gegnum myndina.

Sýnt er frá daglegu lífi Arons og Brynjars haustið 2018, þar sem þeir spiluðu á níu busaböllum út um allt land, annar lagðist undir skurðhníf, hinn litaði á sér hárið í hverri viku en báðir skemmtu sér konunglega.

Sjáðu stiklu fyrir myndina

Auglýsing

læk

Instagram