Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska landsliðsins í handbolta og fráfarandi þjálfari úrvalsdeildarliðsins Füchse Berlin, hefur ásamt tveimur félögum sínum þróað appið Cupodium sem leysir ansi sérstakt vandamál: Skort á plássi undir bikara.
Þetta kemur fram á vef þýska blaðsins BZ.
Appið er einskonar sýndarbikarskápur. Dagur segir í viðtali á vef BZ að fólk getur raðað bikurum í skápinn í hvert skipti sem það nær sérstökum árangri eða vinnur titla.
https://twitter.com/DagurSigurdsson/status/602398892727099393
Þá segir Dagur að appið geri árangur og verðlaun ódauðleg. „Í appinu geta allir tekið bikarana með sér hvert sem þeir fara,“ segir hann.
Appið má sækja hér í App Store.