Davíð Karl vanhelgaði óvart fæðingarstað Kim Il-Sung: „Þetta var hræðilegt“

Félagarnir Davíð Karl Wiium og Davíð Vilmundarson ferðuðust til Pyongyang í Norður-Kóreu fyrir tæpu ári. Félagarnir lýsa ferðinni í þættinum Ferðalag, sem verður á dagskrá Rásar 1 á morgun.

Sjá einnig: Hver sagði hvað? Kim Jong-un eða ríkisstjórnin

Auglýsing

Davíð Karl tefldi á tæpasta vað þegar hann vanhelgaði fæðingarstað Kim Il-Sung, sem var leiðtogi Norður-Kóreu í 46 ár, frá 1948 þangað til hann lést árið 1994.

Félagarnir voru í kynningarferð um um fæðingarstað Kim Il-Sung. Þar fá ferðamenn að drekka úr brunni fjölskyldunnar, þar sem þjóðarleiðtoginn á sjálfur að hafa sótt sér vatn er hann sleit barnsskónum.

Davíð Karl lýsir því í viðtalinu í þættinum hvernig hann hafi fengið sér sopa. Hann kláraði ekki vatnið úr ausunni og skvetti afgangnum aftur í brunninn. Þögn sló á hópinn enda hafði hann óafvitandi vanhelgað fæðingarstað Kim Il-Sung með því að skila vatninu aftur í brunninn.

Ég sofnaði eiginlega ekki eftir þetta. Þetta var hræðilegt. Ég tók einn sopa og ætlaði svo að skila því. Ég er allaveganna hérna í dag.

Davíð Karl segir að meiningin hafi alls ekki verið að vanhelga eða vanvirða þá og þeirra kúltur. „Þetta var bara algjört hugsunarleysi.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing