Séra Davíð Þór Jónsson er á forsíðu MAN sem kemur í verslanir á morgun. Hann hljóp í skarðið fyrir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, sem setti prentun blaðsins í uppnám í síðustu viku.
Til stóð að Hanna Birna yrði í forsíðuviðtali í MAN, sem átti að fara í prentun sama dag og opinskátt viðtal í Íslandi í dag fór í loftið.
Nútíminn greindi frá því í síðustu viku að búið hafi verið að taka viðtalið við Hönnu Birnu fyrir MAN þegar hún mætti í Ísland í dag og endurtók nánast orðrétt það sem hún sagði blaðamanni MAN.
Prentun á blaðinu var því frestað á meðan nýtt forsíðuviðtal var tekið.
Samkvæmt heimildum Nútímans hafði Hanna Birna lofað að fara ekki í persónulegt viðtal annars staðar. Það stóð þó til að hún færi í fréttaviðtöl um endurkomuna á þing.
Davíð Þór er sóknarprestur á Eskifirði í dag en hann var þekktur grínisti á árum áður. Í viðtalinu segir hann hispurslaust frá skoðunum sínum á rekstri kirkjunnar hér á landi og segir að það þurfi að kollvarpa kirkjuskipan nútímans.
Það þarf að losa kirkjuna úr klóm prestastéttarinnar og afhenda hana fólkinu. Prestar eru stjórnsýslulega vanhæfir til að hafa nokkuð um það að segja með hvaða hætti prestar eru ráðnir.
Hann segir einnig að taka þurfi hlunnindamálin til endurskoðunar.
„Sumir prestar fá hugsanlega meiri tekjur af hlunnindum en fyrir prestsstarfið, bara fyrir það eitt að vera með heimilisfangið sitt á ákveðnum stað,“ segir hann.