Dómarinn Einar Bárðarson: „Ítalarnir stóðu sig mjög illa á dómarakeyrslunni“

Fjölmiðlar hafa greint frá því í dag að ís­lensk­ir kjós­end­ur vildu gefa Ítal­íu 12 stig en dóm­nefnd­in setti þá í 11. sæti. Þeir fengu því aðeins fimm stig frá Íslendingum.

Að mati dóm­nefnd­ar­inn­ar voru Sví­ar með besta lagið, Norðmenn í öðru sæti og Lett­ar í því þriðja. Að mati kjós­enda var hins veg­ar Ítal­ía með besta lagið, Sví­ar í öðru sæti og Ástr­alir í því þriðja.

Auglýsing

Sjá einnig: Sex tíst sem fengu glimrandi undirtektir yfir úrslitum Eurovision

Pirrings gætir meðal fólks á samfélagsmiðlum og telja margir að þjóðin eigi að fá að ráða. Dómnefnd fer hins vegar eftir öðrum flutningi en í lokakeppninni og Einar Bárðarson, sem sat í íslensku dómnefndinni, varpaði ljósi á málið á Facebook-síðu sinni í dag.

 

„Ég hef séð nokkar fréttir af því í dag að dómnefndir landa Evrópu hafi gefið Svíþjóð flest stig og Ítalía hafi fengið langflest stig kjósenda Evrópu,“ segir hann.

Það er í raun ekkert skrýtið því Ítalarnir stóðu sig mjög illa á dómarakeyrslunni á föstudagskvöldið.

Einar segir að þeir ítölsku hafi svo staðið sig mun betur í lokakeppninni á laugardagskvöld.

„Ég hafði orð á því hér á Facebook í lok keppninar í gær, fyrir stigagjöfina, að Ítalirnir myndu með þeirri frammistöðu bæta sér aftur í topp baráttuna,“ segir hann.

„Það var hinsvegar eftirtektarvert að sænski drengurinn söng þetta jafn vel öll fjögur kvöldin í röð. Dómararennslið á miðvikudag var óaðfinnanlegt, það var einnig keppnisframmistaða hans á fimmtudagskvöldið sem og frammistaða hans á föstudag og laugardag.

Hann gerði þetta uppá 10 ef ekki 11 aftur og aftur án þess að svitna, hósta eða slá feilnótu einu sinni. Það er keppnis og þannig vinna menn Eurovision.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing