Dreifir myndum af Arturi í von um að þær hjálpi einhverjum að muna eftir upplýsingum um ferðir hans

Stefanía Anna Rúnarsdóttir, vinkona Arturs Jarmoszko, hefur dreift myndum af Arturi í von um að þær hjálpi einhverjum að muna eftir upplýsingum um ferðir hans. Sjáðu færsluna frá Stefaníu á Facebook hér fyrir neðan.

„Hann er góður vinur, yfirmaður og samstarfsfélagi okkar og við óskum einskis heitar en að fá hann heim eða vita af honum öruggum einhversstaðar,“ segir Stefanía í færslunni.

Leit að Arturi Jarmoszko hefur verið hætt þar til nýjar vísbendingar berast. Engar nýjar vísbendingar hafi borist um ferðir Arturs sem hefur ekki sést síðan um mánaðarmótin.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Arturs eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða í gegnum einkaskilaboð á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Auglýsing

læk

Instagram