Saint Paul Edeh, leigubílstjóri sem kollegar hafa uppnefnt „Dýrlinginn“, virðist hafa verið sviptur atvinnuréttindum sínum samkvæmt upplýsingum á vef Samgöngustofu.
Það var Vísir sem sagði fyrst frá.
Edeh var viðriðinn mál sem vakti mikla athygli í síðustu viku þegar myndskeið birtist af honum í átökum við tvær mexíkóskar ferðakonur við Bláa lónið.
Leigubílstjóri sakaður um að svíkja samkomulag – Grátandi konur og öskrandi leigubílstjóri
Myndband vakti mikla athygli
Í myndskeiðinu, sem Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý Hönter, birti, sést Edeh deila hart við konurnar sem töldu sig hafa verið sviknar.
Á upptökunni virðist hann einnig skella skotti bílsins á höfuð annarrar konunnar þegar hún reyndi að ná í farangur sinn.
Edeh neitar því að atvikið hafi átt sér stað á þann hátt og segir að hann hafi aðeins verið að krefjast greiðslu fyrir það sem hann heldur fram að þær hafi skuldað honum.
Nafn hans horfið af lista Samgöngustofu
Í dag er nafnið hans horfið af lista Samgöngustofu yfir atvinnuleyfishafa í leigubílaakstri, sem var síðast uppfærður í gær.
Sama gildir um leigubílafyrirtæki hans, Taxi Amen.
Samkvæmt heimildum fréttastofu Vísis er um að ræða sviptingu atvinnuréttinda.
Samgöngustofa tjáir sig þó ekki um einstaka mál, að sögn samskiptastjóra stofnunarinnar, Þórhildar Elínar Elínardóttur.
„Enginn hefur sagt mér neitt“
Edeh sagðist ekkert hafa verið upplýstur um málið.
„Enginn hefur sagt mér neitt,“ sagði hann og hélt því jafnframt fram að hann hefði ekki gert neitt rangt.
Innviðaráðherra boðar lagabreytingar
Atvikið hefur orðið til þess að leigubílamarkaðurinn er enn á ný kominn í brennidepil.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra greindi frá því í viðtali að hann hygðist leggja frumvarp um leigubílamál sem sitt fyrsta mál þegar Alþingi kemur saman í september.
Frumvarpið felur í sér að stöðvaskylda verði aftur tekin upp, auk þess sem Neytendastofa fái eftirlit með því að gjaldskrár bílstjóra séu sýnilegar.
Þá sagðist ráðherrann einnig vilja gera íslensku að prófmáli leigubílstjóra.