Egill Tiny um Bam Margera: „Þessi gaur var að leita sér að vandræðum“

Rapparinn Egill Ólafur Thorarensen, betur þekktur sem Egill Tiny, einn af skipuleggjendum tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice, sem fór fram í Laugardal um helgina segir að Bam Margera hafi verið að leita sér að vandræðum. Þetta kom fram í viðtali við Egil í útvarpsþættinum Harmageddon á X977 í morgun.

Sjá einnig: Hver er Leon Hill?

Ráðist var á tónlistarmanninn og Jackass-meðliminn Bam Margera í baksviðsaðstöðu Secret Solstice á laugardagskvöld. Aðstanendur hátíðarinnar sögðu Margera hafa verið í annarlegu ástandi að áreita starfsfólk hátíðarinnar.

Því hafnar Margera sem segist hafa verið að leita að athafnamanninum Leon Hill vegna mála úr fortíðinni.

Egill sagði í Harmageddon að Margera hafa verið til vandræða alla hátíðina.

Hann segir að það sem gerist á upptöku sem var sýnd á Vísi hafi verið mjög lítill hluti af því gerðist þetta kvöld og kallar eftir öllu myndbandinu, sem kærasta Margera tók upp og kom í dreifingu.

„Það sem sést er í raun og veru lokasekúndurnar. Atburðarásin er lengri,“ sagði Egill og bætir að Bam og félagar hafi sýnt ógnandi tilburði. „Ég einn byrja að tala við hann, stoppa hann af. Þá er hann að leita að Leon Hill.“

Hann skallar mig. Ýtir mér. Ég kalla eftir gæslu. Hann heldur áfram að ýta mér og hóta mér.

Egill þakkar Gísla Pálma fyrir að koma sér til hjálpar þegar félagar Margera veittust að honum.

„Þannig þetta var bara ég á móti þremur áður en Gísli kom mér til bjargar. Við Gísli vorum ekki að koma neinum stelpum til bjargar heldur að redda okkur. Ég er enginn stuðningsmaður ofbeldis og það er enginn að hreykja sér af þessu. Ofbeldi er aldrei réttlætanlegt.“

Hann segir að það hafi aldrei verið ásetningur að lenda í átökum við Margera. „Þessi gaur var að leita sér að vandræðum. Ég var búinn að hafa mikla þolinmæði gagnvart þessum gaur,“ segir hann.

Hlustaðu á spjallið við Egil hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram