Símaskráin 2015 var gefin út í vikunni.
Tvíburar á mismunandi aldri prýða þrjár útgáfur af forsíðu símaskrárinnar og í tilkynningu kemur fram að þeir eigi að endurspegla tvenndina í símanúmerinu 1818 sem tók formlega við af 118 nú í byrjun maí.
Á meðal þeirra sem hafa séð um forsíðuna á símaskránni eru Hugleikur Dagsson og Egill Einarsson.
Nútímanum áskotnaðist þetta skjáskot úr lokuðum hópi félaga í rithöfundasambandi Íslands á Facebook. Þar leggur fyrrnefndur Egill til að samstarfið við útgefanda símaskrárinnar og „þeirra í menningunni“ verði endurnýjað.
Viðbrögð félagsmanna voru vægast sagt lítil — aðeins fjórir af þeim 123 sem sáu skilaboðin líkuðu við færsluna og einn rithöfundur hvatti Egil til dáða: Gunnar Helgason.
Nútíminn hafði samband við Egil sem segir að viðbrögðin komi sér svolítið á óvart.
Ég hélt að enginn hefði séð póstinn en síðan sá ég að yfir 120 meðlimir voru búnir að lesa færsluna. Ég fékk nú samt fjögur like, sem er met hjá mér í grúppunni.
Egill segist ætla að reyna að rífa stemninguna upp í hópnum.
„Á næstu dögum er ég að spá í að stinga upp á sumarpartýi á Austur. Ég er nokkuð viss að sá status muni slá í gegn!“