Lögreglan í Vestmannaeyjum staðfestir að ein tilkynning um meint kynferðisbrot barst í umdæminu á meðan Þjóðhátíð fór fram um verslunarmannahelgina. Þetta kemur fram í svari embættisins við fyrirspurn fréttastofu Sýnar.
Arndís Bára Ingimarsdóttir, settur lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, segir að embættið hafi ekki viljað gefa upp fjölda tilkynninga fyrr en búið væri að tryggja rannsóknarhagsmuni.
„Lögreglan veitir ekki upplýsingar um brot fyrr en búið er að tryggja rannsóknarhagsmuni og á það við um öll brot,“ segir Arndís Bára.
Forvarnir í forgrunni
Lögreglan í Vestmannaeyjum tekur þátt í ýmsum forvarnarverkefnum sem tengjast Þjóðhátíð, þar á meðal sameiginlegu átaki með ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunni undir yfirskriftinni „Góða skemmtun“. Dreift hefur verið fræðsluefni á samfélagsmiðlum og á skjám í Herjólfsdal.
Þjóðhátíðarnefnd stendur einnig að verkefninu „Er allt í lagi?“ og hefur lögreglan stutt það frá upphafi. Arndís Bára segir að lögreglan í Vestmannaeyjum muni áfram styðja og taka þátt í slíkum verkefnum.