Mál Sigurðar Inga Þórðarsonar er á meðal umfangsmestu kynferðisbrotamála síðari ára. Hann hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn níu piltum. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Sigurður er 22 ára en var 18 til 21 árs þegar atvikin áttu sér stað. Í gæsluvarðhaldsúrskurðinum kemur fram að geðlæknir sem gerði rannsókn á Sigurði telji hann sakhæfan en siðblindan.
Þar kemur einnig fram að við rannsókn málsins kom fram að hann væri grunaður um að hafa brotið gegn ellefu piltum á unglingsaldri, sumum undir lögaldri og einhverjum yngri en fimmtán ára. Tvö málanna leiddu ekki til ákæru.
RÚV greinir frá því að Sigurður var meðal annars grunaður um nauðgun, að tæla pilta og kaupa sér kynlífsþjónustu:
„Sigurður, oft nefndur Siggi hakkari, var í febrúar í fyrra dæmdur í Hæstarétti fyrir að tæla 17 ára pilt með blekkingum, með því að telja honum trú um að hann myndi greiða honum háar fjárhæðir og sjá til þess að hann myndi ekki missa bílprófið, þrátt fyrir ölvunarakstur, ef pilturinn hefði við hann kynmök.
Í mars í fyrra gekkst Sigurður undir sátt fyrir þjófnað og samþykkti að greiða sekt. Rétt fyrir áramót var hann dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir stórfelld fjársvik, fjárdrátt, skjalafals og eignaspjöll.“